Ég á í smá erviðleikum sem ég er ekki að ráða við sjálfur eins og er. Þannig er mál með vexti að ég átti í ástarsambandi við stölpu í desenber 1999. Þessi stelpa var mjög skemmtileg og allt það, en átti ekki beinlínis braut inn í mitt líf þá svo sambandið slittnaði upp og dó ein og hendi væri veifað. Nema hvað að þessi stelpa var nú ekkjert að sætta sig við þessa málvexti og hefur ofsótt mig síðan. Hún hringir svona að meðaltali 3.sinnum í viku og er þess vegna ekki að tala um neitt, bara að kjafta. Þó hún tali svona rosalega við mig en þá þá baktalar hún mig líka við alla sína vini og varar fólk við því að tala við mig vegna þess hve ég særði hana. Kallar mig hóru og seigir að ég geri ekkjert annað en að komast upp á stelpur og fleija þeim svo. Þetta er als ekki satt, og þeir sem til mín þekkja vita það alveg. Mér finst sárt að lifa svona, en svona er það bara. Ég er alveg ráðalaus hvað ég á að gera því hún vill ekki viðurkenna fyrir mér að hún geri þetta. Þess vegna spir ég ykkur lesendur hugi.is
Hvað get ég gert?
———————————————–