málin eru þannig að það er gaur sem ég er ´búin að vera hrifin af í nokkra mánuði. hann vissi af því þar sem ég hringdi í hann eitt skiptið þegar ég var á djamminu og sagði honum frá því. hann tók því ekki illa að ég hefði sagt honum það en hann var hrifinn af annari á þeim tíma. ég varð ekkert sár útaf því þar sem hver og einn má hafa sínar tilfinningar. en svo nokkrum vikum seinna byrjar hann að reyna við mig og við erum að “dúlla” okkur saman í eikkerjar vikur.
en einn daginn ákveður hann að fara í vont skap út í mig og vildi ekki segja hvers vegna og hættir að tala við mig. ég varð náttúrulega sár út í hann, en var svo að byrja að jafna mig nokkrum dögum seinna. en svo kemur allra besta vinkona mín (sem ég tala um allt við) og segir mér að hann hafi verið að tjá henni ást sína á sér og vilji vera með henni og það eina sem hann gat sagt þegar hún spurði út í það sem hann hafði gert með mér var “æji… ég bara veit það ekki!!” og svo ekkert meira.
hvað á ég að gera í sambandi við gaurinn??