Jæja kæru hugarar, um daginn var ball í skólanum mínum og ég hitti einn strák sem ég var eitthvað smá að hössla… Hann er í sama skóla og ég, einu ári yngri. Ég gerði nú ekkert merkilegt með honum, og gisti t.d. ekki hjá honum þó að ég sjái svolítið eftir því núna.
Málið er bara að mig er farið að langa smá í hann núna… Hann er svolítið krútt að mínu mati og ég held að hann sé geðveikt skemmtilegur, og hann er búinn að horfa smá á mig og ég á hann eftir að þetta gerðist, en ég veit samt ekki hvort ég eigi að taka eitthvað mark á því.
En hvað ætti ég að gera? Ég er ekki með númerið hans og hann er ekki með mitt, en ég veit msn emailið hjá honum en ég bara þori ekki að adda honum, þá verður hann kannski hræddur eða eitthvað… Ætti ég kannski að gera það samt? Bara go for it?
Vona að sem flestir svari! ;)
<br><br>Lífið er eins og konfektkassi…þú veist aldrei hvaða mola þú færð!! :o)
_____________________________________________

Ég er æði, þú ert æði, við erum öll æði!! :D

Ég vil FIMLEIKA sem áhugamál!!
Ég finn til, þess vegna er ég