Sælt veri fólkið.

hérna kemur enn ein greinin hvað maður á að gera til að ná sér í stelpu drauma sinna, ef maður getur orðað það svona.
En aftur á móti vil ég fá einhverjar ráðleggingar hvernin maður á að haga sér. Ég og þessi unga kona erum oft saman sem vinir en við vorum saman sem par í einhvern tíma, skiptir engu hversu langur tíminn það var. En núna er hún með öðrum sem hún er búin að vera með í 1-2 vikur. hún veit að ég sé ástfanginn af henni og allt það og ég er búinn að játa það fyrir henni, en samt sem áður er hún að fara norður um helgina og reyna að finna sér íbúð þar, en ég bý vestan megin, skiptir engu máli hvar. ekki koma með neina leiðindar svör á móti. ég er reyndar að fara í eitthvert þunglyndiskast sem ég vil bara ekki vera í. ég er reyndar búinn að reyna allt sem ég get til að fá hana aftur. Og að hún er sjálf búin að segja mér að hún hafi áhuga. en hún vill bara ekki særa þennan mann sem hún er með núna. hún sagði líka að hún hafi kannski ekki neinn áhuga á þessum manni, bar hvað á ég að gera “ bíða eða!” …

Geriði það svariði mér með öllum ykkar kærleika í garð ástarinnar..

Kv. einn ástfanginn……