Sko… það er þannig að ég var á balli í síðustu viku…. og ég vangaði við einn strák þarna sem er einu ári eldri en ég.
Málið er að ég er á föstu… og kærastinn komst einhvernvegin að þessu og varð alveg brjál…. honum finnst aðal málið vera að þssi gaur er eldri en ég (samt getur hann ekki sagt mikið því hann er sjálfur tveim árum eldri en ég)
Þegar ballið var búið þá var ég samferða þessum strák heim, og reyndar kyssti ég hann bless líka… en það var ekkert alvarlegt, enda erum við bara vinir.
Ég skil ekki hvernig kærasti minn hefur getað fattað þetta…!!

Persónulega finnst mér þetta vera langt frá því að vera framhjáhald… þetta með kossinn… það var ekki þannig að við hefðum baa staðið þarna í hörkusleik eða eikkva…
En kærastinn er ekki sammála :/

Hvað finnst ykkur??<br><br>————————————————
Bjórfaðirvorið.

Bjór minn vor
þú sem ert í flösku
frelsist þinn tappi
tilkomi þín froða
freyði þínir humlar
svo í glasi sem í munni
svalaðu í dag mínum daglega þorsta
og skeyttu ei um vísaskuldir
svo og líka hjá þyrstunautum mínum
eigi leið þú oss á Astró
heldur ei á Nasa
því að þitt er valdið
gleðin og stuðið
að eilífu
Carlsberg