Það er ótrúlegt hvað sumir hlutir minna okkur á. Eins og t.d. með mig… þá get ég ekki hlustað á Complicated með Avril Lavigne því það minnir mig á stelpu sem ég tel vera stóru ástina í mínu lífi og myndi ég gera hvað sem er til þess að vera með henni aftur…. bara við að heyra þetta lag man ég allt, hvernig það var að halda utan um hana, kyssa hana og hvernig hún ilmaði (Efast um að nokkur stúlka ilmi betur :D). Þetta er alveg magnað hvað svona smá hlutir í daglegu lífi minna okkur á. En málið með þessa stelpu er ég veit ekki hvað! þegar við vorum saman, hefði ég gert allt fyrir hana, en hún fýlar stráka sem er alveg sama um hana… magnað hvað sumar stelpur fýla! :D