já ég er í smá veseni,ég lenti í smá strákaveseni um daginn og eftir það ákvað ég að hætta að vera að hugsa um karlmenn og fara að einbeita mér að námi mínu en núna eru 3 strákar á eftir mér og 2 eru hér á Akureyri þar sem ég er og svo er annar sem býr í bænum en vill koma að hitta mig ….en eins og alltaf þá er ég hrifin af öðrum sták sem vill mig ekki og þetta er allt saman heilmikið vesen,einn af þessum strákum er alltaf að bjóða mér í bíó og svo annar er alltaf að biðja mig um að koma í heimsókn og ég vil ekkert láta neitt gerast með þeim þar sem ég hrifin af öðrum…ég er í klandri eins og þú sérð…