hæhæ, ég er að kafna, eða kannski ekki kafna… málið er bra ég er svo hrifin af gaur sem er reyndar í öðrum skóla, og í öðru bæjarfélagi.
Við hittumst einu sinni… man samt ekki hvar, en það var snemma í vor, hann byrjaði að tala við mig og svona, en ég hafði lítinn áhuga. Hann bað um númerið mitt og ég hugsaði; njaaa sakar varla að láta einn gayr hafa númerið, þetta er nú einu sinni bara sími… og lét hann fá númerið. Það liðu ekki margar klst. þangað til að ég fékk sms; Hæ ég varð að segja þér það… þú ert fallegast stelpa sem ég hef séð, þú hefur svakalega útgeislun.
Ég hugsaði bra jájá, einn enn gaur sem vill bara ríða…. svo ég sendi bara; takk… ;) og svo fékk ég smsflóðið.
Við sms-uðumst næstum á hverjum degi, bra um allt…. höfðum mjög svipuð áhugamál og svona. Svo fórum við að hittast og leiddumst stundum, á menningarnótt þá vorum við saman niðrí bæ og bæði mjög full, því miður…. og þar af leiðandi hafði ég enga sjórn á mér, bra sé ógeðslega eftir þessu. Ég á víst að hafa farið með þessum gaur og riðið honum (vona að það sé kjaftasaga, man allavega ekkert eftir því), og ef það sé satt þá er ég að sjá eftir því meira en ölluöðru sem ég hef gert…. plííís ekki fara að svara þessu með einhverjum leiðindum…. ok, við fórum svo saman í kringluna og svona mörgum dömum seinna og töluðum bara ekkert saman í 2 vikur eða eikkað og ég varð hrifin af öðrum strák og fór að tala við hann…. en hafði reyndar aldrei verið hrifin af þessum fyrri…. svo núna þá er ég byrjuð að tala aftur við hann og hann við mig og ég er orðin virkilega hrifin af honum, og hann er alltaf að segja; ef þú sért til í að starta sambandi þá er ég alleg til…..
Nema málið er að vinkona mín er líka svo hrifin af honum, en mig langar svo að starta þessu, get ekki hætt að hugsa um þetta…. nennið að segja hvað ykkur finnst!!!! PLÍS
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá