Ég er strákur í 10. bekk og er hrifinn af stelpu í mínum bekk. Ég tala næstum aldrei við hana, en ég hef farið að tala við hana undanfarið á msn. Ég hef eiginlega engin viðbrögð fengið frá henni fyrir utan svona almenn svör. Ég er samt viss um að hún viti að ég er hrifinn af henni, því að ég sagði bæði bestu vinkonu hennar það og reyndi líka að segja henni það með því að benda henni á fallegt lag. Ég veit fyrir víst að hún er ekki með strák. Hvað get ég eiginlega gert til að vita fyrir víst hvort henni líkar einfaldlega ekki við mig eða hvort hún er eitthvað að spá?