Í fyrra byrjaði ég með strák sem hafði verið vinur minn svo lengi að ég man ekki einu sinni hvernig við kynntumst! Fyrst var þetta ágætt, hann var alltaf svo sætur, sendi mér sms og svona. En svo hætti hann að nenna að tala við mig og var einhvernveginn eins og hann væri að forðast mig! Mig langaði ekki til að hætta með honum þá svo að ég spurði hann hvort að eitthvað væri að en hann sagði nei og vildi ekkert kannast við að hafa verið sona fjarlægur og allt það. Ég hugsaði bara að þetta myndi örugglega lagast og eitthvað þannig en þegar ég talaði ekki við hann í viku samfleitt ákvað ég að þetta yrði ekki svona. Svo ég hætti með honum. Nú er svolítið langur tími síðan en hann er alltaf að horfa á mig og svona. Mig dreymdi hann í vikunni og þegar ég vaknaði hugsaði ég með mér að þetta hefði verið góður draumur af því að við vorum byrjuð aftur saman í draumnum! Hann er nú ekki beint fullkominn, hann hefur ekkert rosalega góðann húmor og hann er líka svo horaður! :S Ég veit ekkkert hvað mér finnst um hann!