Þannig er mál með vexti.
Ég er búinn að vera að dúlla mér með stelpu núna í svoldin tíma og við erum saman næstum alla daga. En hún er ný komin úr löngu sambandi og vill ekki að við byrjum saman formlega og við laumupokumst með þetta í skólanum og annarsstaðar og það veit eiginlega enginn af þessu, ég veit ekki hvað ég á að bíða lengi. Hvernig veit ég hvort ég sé ekki bara svona bangsi þangað til að eitthvað annað og skárra fynnst?? Og hvað er málið með að vilja að ég gisti hjá henni flesta daga en svo segir hún inni á milli að hún vilji líka hafa þetta rólegt og hún vilji ekki binda sig því hún vilji vera frjáls og viti ekki hvort við eigum að gera þetta alvarlegt… Ég hef það á tilfinningunni að hún sé að halda mér heitum á meðan hún leitar að öðrum svo ef hún fynnur ekki neitt skárra þá er ég síðasti kostur.. En samt erum við ekki bara bólfélagar, þetta er einhvernveginn miklu meira.. allavega varð bara að létta aðeins af bakinu á mér…<br><br>elessa
supergravity