Sko ég er búin að vera geðveikt hrifin af einum strák í marga mánuði… og hann er búinn að sýna mér talsverðann áhuga.
ég tek til dæmis eftir því að hann horfir á mig í tímum, horfir á mig og brosir og svo framvegis.
En solleiss er það að ég er búin að vera að drepast úr ást á honum MJÖG LENGI!
síðan þá get ég ekki byrgt þetta inni í mér lengur og sagði vinkonum mínum þetta.
Þær brugðust mjög vel við og spurðu hann fyrir mig… en hann sagði NEI!!!!!!!!!
Að vísu veit ég ekki nákvæmlega hvað hann sagði en bara að hann sagði nei!
Af hverju?
Og við erum búin að vera eitthvað voða feimin við hvort annað síðan, en það er að lagast.
Og hann horfir ennþá á mig!
ég er að deyja ég er svo hrifin af honum!
Mig dreymir sama drauminn aftur og aftur að við stöndum fyrir utan skólann og leiðumst og brosum og erum með vinum okkar!
Við eigum sko alveg sömu vini!
Hvað á ég að gera?