OK.. þannig er nú mál með vexti að ég var í partýi fyrir um svona mánuði og þar hitti ég alveg frábæran strák (sem var reyndar 6 árum eldri en ég) og við töluðum saman og dönsuðum og svona voða gaman…. Og svo vorum við búin að tala soldið saman í síma eftir þetta og ég hitti hann svo og fór með honum í bíó (og við héldumst í hendur allan tímann) og svo töluðum við meira saman og meira og meira og hann sagði að honum hefði svo langað að kyssa mig og að hann hefði áhuga á mér og sagði að ég væri svo falleg og auðvitað féll ég alveg fyrir því og svo spurði hann hvort ég vildi hitta hann aftur og ég sagði já… en svo spurði hann mig hvort ég væri hrein mey og ég sagði já og síðan hefur hann bara ekkert talað við mig….Það er komin svona vika síðan.