jæja svona liggur nú í því, ég er ný byrjuð með strák, við höfum þekkst svoltið lengi og alltaf verið hrifin af hvort öðru, og að minnstakosti ég vissi að hann væri hrifinn af mér. En ég gerði aldrey neitt í því. Svo á endanum lendum við einhvernveginn saman og erum búin að vera saman síðan, En málið er að hann býr í reykjavík en ekki ég og ég held að það verði mjög erfitt að reyna að vera saman þann tíma sem hann er þar! Hann kemur mjög oft hingað til mín og allt sko samt. En svo erum við bara búin að vera saman í eina viku og ég er að drepast, mig langar svo að kyssa hann! (við erum ekki enn búin að kyssast svona almennilegum kossi! Can you belive it!?) En ég veit ekkert hvernig hann mun bregðast við því ef ég kem bara allt í einu upp að honum og skelli á hann einum blautum! En ég get ekki hugsað um neitt annað! hugsa meira að segja um það í sturtunni! Dreymir um það! nei kanski ekki þetta með draumana en samt! Ég veit ekkert hvað ég á að gera! Og ég meina, ég hef nú ekkert kysst það marga svona real kiss um æfina! Hvað á ég að gera? Hjálp!
Kv. Alezee