Þarf ást að vera hrifning, ég var hrifinn af þessari stelpu, hún vildi að sjálfsögðu ekkert með mig hafa. En nú er ég að fara að flytja, og þá segi ég við hana: Ég er að fara að flytja bráðum, en það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki fengið að kynnast þér.
Þá svarar hún, og segist auðvitað vilja vera vinur minn. Málið er að nú þegar við erum vinir þá elska ég hana meira og myndi gera allt fyrir hana, en það er ekki hrifning. Hmm, þetta er mjög skrítið.
ViktorAlex