Hæ, ég á í smá vandamáli með kærustuna mína. Þannig liggur í málunum að ég afmeyjaði hana og við erum búin að vera mjög hamingjusöm saman en ég hef verið með örfáum stelpum áður í kynferðislegu sambandi og hún þolir það ekki og segir það við mig daglega að hún óskar þess að ég væri hreinn sveinn og allskonar svona. Hvað á ég að gera við þessu hún fer alltaf í fýlu þegar hún man þetta og það er nánast alltaf og síðan reyni ég alltaf að tala við hana en þá segir hún eitthvað meira og snýr öllu við. Hjálp!