Mér finnst svo yndislegt að vera kölluð af honum:´Ástin mín´
að ég alveg bráðna þegar hann segir þetta sama eftir hvaða setningu! Ég er úti á landi og við tölum reglulega í síma og þar sem við erum bæði vör um okkur, þá bíðum við bæði eftir að hin/nn segi:Ég sendi þér koss alla leið!!! Við vorum alveg að sleppa því að segja það…bæði að bíða eftir því í huganum, þangað til ég segi það, þá segir hann:Ég beið eftir að þú myndir segja þetta

Við erum ótrúlega lík!!!!!! Biðum bæði eftir þessu, en ég hlýt að vera aðeins ákveðnari fyrst ég loksins sagði þetta. Vildi bara koma þessu að þó ykkur finnist þetta ekkert merkilegt og vil segja:LÁTIÐ ÞAÐ VAÐA,ÞIÐ SJÁIÐ EKKI EFTIR ÞVÍ OG YKKUR LÍÐUR YYYYNDISLEGA EFTIR Á!!!!!!! Eftir að ég braut þarna ísinn, þá héldum við áfram…og faðma þig og knúsa þig og snúsa þig og kjúsa þig :D Hafið þið lent í þessu að vera bæði vör um ykkur á þennan hátt og ekki þorað að láta það vaða?