Ég hef verið vinkona stráks í skólanum síðan ég byrjaði í skólanum -reyndar man ég ekki hvernig við hittumst fyrst!- og það hefur aldrei verið neitt meira fyrr en núna…ég hef farið tvisvar út með honum og mér finnst hann alveg frábær. Allir í bekknum hans vita að hann er hrifinn af mér og líka allir í mínum bekk mér finnst hann svooooo sætur og skemmtilegur en ég er bara svo rosalega feimin að ég þori ekki að spyrja han hvort að hann vilji byrja með mér! Þetta er kannski svolítið hallærislegt en ég fékk einu sinni að hringja úr símanum hans og þá sá ég hvað stóð hjá númerinu, það stóð “krúttípútt”!!!! Þetta er náttúrulega alveg fáránlegt en samt……..

Hvað á ég að gera við þessa bölvaða feimni?? :S