Bara verð að deila með ykkur smá, ég fór með tvær systur mínar í bíltúr núna áðan og við fórum uppá Þingvelli. Það var meiriháttar að vera þarna í tótal myrkri og labba niður Almannagjá og horfa á norðurljósin og stjörnurnar….eini mínusinn var að þetta var ekki rómantískur bíltúr hjá okkur heldur meira verið að ræða fjölskyldumálin…..en EF það er einhver þarna sem er í vandræðum með að gera e-ð krúttlegt þá mæli ég með þessu og sérstaklega á jafn fallegri nóttu og er núna.