Sælir hugarar. Ég veit að þetta er langt en lesið þetta og hjálpið mér plís.



Þannig er mál með vexti að það er stelpa í bekknum sem er alveg gríðarlega falleg og ég hef verið hrifin af henni síðan ég sá hana fyrst. Hún er á föstu með 23 ára gaur sem lemur hana sundur og saman. Ég og þessi stelpa erum orðnir ansi góðir vinir og hún sagði mér sjálf frá þessu með gaurinn. Þessi gaur er einn af þeim stærstu og þreknustu náungum sem ég hef á ævinni séð….ég meina u.þ.b. 3m á alla kanta. hún elskar gaura sem geta haldið uppi stuði í partýum með gítarspili. Það gerist ekki betra en það að ég get spilað á gítar og hef haldið uppi stuði með gítarspili, en hún veit það ekki :) Svo í næsta partýi þá ætla ég að koma henni á óvart og spila eitthvað fallegt fyrir hana og helst beina því beint til hennar……það er að segja svo að húna fatti að þetta sé til hennar.
En ég veit ekki hvaða lag ég get spilað. Ég gæti samið lag en ég er ekki svo góður í að semja lög.
Jæja svo ég vildi kannski fá hugmyndir frá ykkur hérna á huga.is hvaða lag ég geti spilað svo að hún myndi ná þessu í eitt skipti fyrir öll. Hjálpið mér. Ef þetta heppnst þá getið þið sagt að þið hafið bjargað mannslífi :) :)
Ég vil að allir svari<br><br>Konur eru flóknasta uppfinning móður náttúru, án spaugs
“It's only after you've lost everything that you're free to do anything” - Fight club