jæja þá er Valentínusardagurinn að koma…
ég veit ekkert hvað ég á að gera fyrir kallinn… er að spá í að baka eplaköku eða súkkulaðiköku(honum finnst þær bestar) hafa hana hjartalega og skreyta hana með rauðum nammi hjörtum.. svo er ég að spá í að bjóða honum út í pizzu… og hann ætlar að bjóða mér á móti… (það verður c.a. 1000kall á mann) erum fátækir námsmenn þannig það er ekki mikið sem við getum gert… og svo eigum við svo mikið af dóti að herbergið sem við búum í er troðfullt… þess vegna get ég ekki gefið honum neitt til að setja í hillurnar eða þess háttar… getur einhver komið með sniðugar hugmyndir um hvað er hægt að gera á Valentínusardaginn eða bara sagt hvað þeir ætla að gera?