Jæja halló, ég er búin að vera með kærastanum mínum í eitt ár og 3 mánuði..Ég elska hann gjörsamlega útaf lífinu, hann er búinn til fyrir mig (eða ég fyrir hann) .. það eina sem að við þurfum til þess að lifa er hvort annað og nóg af góðri tónlist (og mat, vatn, húsaskjól, pening..o.s.frv. en þið skiljið hvert ég er að fara með þetta :P)

En allavegana við erum ein heima um helgina og mig langar að gera eitthvað fyrir hann, við erum rosalega dugleg í því að vera góð við hvort annað, koma hvort öðru svolítið á óvart og þess vegna er ég orðin voða æfð í að finna upp á einhverju skemmtilegu til að gera fyrir hann, en mig langar samt að heyra frá ykkur, þið getið nebblega verið svolítið sniðug :) ..Einhverjar hugmyndir?<br><br><font color=“#0000FF”>Mér þætti gaman ef að þú myndir kíkja á <a href="http://www.1970.blogspot.com">síðuna mína</a></font