Þannig er það að það er stelpa í mínum bekk sem er geðveikt feimin. Núna var ball í seinustu viku og hún talar aldrei við mig nema á böllum(þegar við erum full). Mér finnst hún þvílíkt falleg og hún er líklega skemmtileg þegar maður kynnist henni.
Ég reyni og reyni að ná sambandi við hana í skólanum en hún er bara svo feitt feimin að hún segir aldrei neitt á móti. Ég hef reynt að hringja í hana að fyrra bragði en það verða alltaf svona langar og virkilega vandræðalegar þagnir því hún segir ekkert á móti.

Hvað get ég gert? Ég er alveg að gefast upp en mig langar ekki að gefast upp ekki þegar þessi manneskja á í hlut.
Ég vil svör frá öllum með viti :)<br><br>Konur eru flóknasta uppfinning móður náttúru, án spaugs
“It's only after you've lost everything that you're free to do anything” - Fight club