Ég ætla að reyna að vera pínu sætur í mér, svo ég pantaði tíma handa kærustunni minni (búum ekki á sama stað) :( í svona heilsulind. Hún á tíma í slökunarnuddi sem ég pantaði í 1 klst og svo andlitshreinsun og höfuðnuddi sem tekur 1 1/2 tíma, samtals 2 1/2 tími.
En þetta á auðvitað að vera óvænt og hún má ekkert vita. EN hvernig get ég komið henni í heilsulindina án þess að hún viti eitthvað? ég segi ekki við konuna farðu nú út í xxxx heilsulind og…. :) Svo, einhverjar uppástungur hvernig ég kem henni þangað grunlausri? Og annað, mig langar að hafa eitthvað á bekknum þegar hún fer á hann.. eitthvað sætt og persónlulegt, hvað getur það verið?? Eitthvað annað en rós kannski… það er svo ófrumlegt. Eitthvað með rósinni……

Brínið heilasellurnar fyrir mig og hjálpið mér :)