hæ hæ ég er í rosa vandræðum. Ég sko þarna var með strák sem að var rosa leiðinlegur við mig. Ætla ekkert að fara nánar út í það. Þið verðið bara að trúa því að hann hafi virkilega verið það.
þannig er að ég sagði honum upp vegna þess að ég bara gat ekki gert þetta lengur. Við vorum í ár saman.
Þannig er að núna er ég búin að vera með bróður hans mikið þar sem að hann var að byrja í skólanum. En ég þekkti hann auðvitað áður en hann byrjaði í skólaum. Við vorum sko í sitt hvorum skólanum í grunnskóla.
Nema það að ég er orðin rosa hrifinn af þessum bróður hans! Þetta er hvíllíkt mess sko. og nema það að besta vinkona mín er lika hrifinn af honum. Við erum sko báðar 17 ára en hann er 16 ára. Þótt að hann sé 16 ára þá er hann samt ekki eins og 16 ára. Við göngum oft saman heim úr skólanum. Hann er mikið með mér og við höfum farið saman í bíó og svona. Við vorum í party og hann var mjög fullur og hann sagðist vilja reyna við mig og að bróðir hans hefði farið svo illa með mig og að ég ætti ekki alls ekki að byrja með honum aftur og svona og sagði að ég væri rosa flott og hann kyssti mig þegar að ég sagðist ekki ætla að byrja með bróður hans. En já síðan er einn vinur bestu vinkonu minnar og mín sem að veit ekkert hvað hann á að gera. Hann er líka vinur stráksins sko. Hann veit að við báðar erum hrifnar af sama stráknum. Ég veit að vinkona mín sé hrifin af sama strák og ég en hún veit ekki að ég sé líka hrifin af honum. Vinur bestu vinkonu minnar veit líka að strákurinn er ekki hrifin af bestu vinkonu minni. Hvað á ég að gera? Á ég að segja vinkonu minni frá þessu eða…..? Ég veit ekkert hvernig hún mundi bregðast við ef að eitthvað meira gerðist á milli mín og stráksins…ÉG er alveg ráðalaus!