Ok ég las þennan lista sem var sendur inn hér um daginn, 26 atriði sem hinn fullkomni kærasti á að gera, það sem ég var mest hissa á voru sum svörin sem komu. Eins og “hvað hin gráðuga kærasta ætti að gera í staðinn…” Mér finnst oft einkennandi í umræðunni hérna um sambönd að strákurinn þurfi að gera allt til að þóknast stelpunni og ef hann gerir það ekki þá dömpar hún honum eða er algjör gribba. Þegar ég las yfir listan þá sá ég að þetta voru flest allt atriði sem ég sjálf geri þegar ég er ástfangin í sambandi. Ég meina hverjum finnst ekki gott að knúsa elskuna sína og fikkta í hárinu, þefa af hárinu hans/hennar því það er jú alltaf góð lykt:) Og auðvitað gefur maður elskunni sinni nudd ef hún þarf á því að halda (eða ekki…) þetta eru jú allt atriði sem maður gerir ósjálfrátt þegar maður er ástfanginn hvort sem maður er stelpa eða strákur.
Það sem ég er að reyna segja er að eins og þið vitið sem hafið verið í ástfangin þá gerir maður hluti fyrir elskuna sína sem manni myndi ekki detta í hug að gera fyrir aðra, og oft gerir maður hluti án þess að vera beðinn um þá og verður svo pirraður ef manni er ekki þakkað fyrir :) og þetta á við um bæði kynin. En eins og ég sagði í byrjun þá varð ég svo hissa á því að sjá svör eins og að við stelpur gerum aldrei neitt fyrir kærastana okkar. Ég copy pastaði listanum hérna fyrir neðan fyrir þau sem hafið ekki séð hann. En það eru sum atriði sem ég er ekki sammála, eins og hvaða stákur myndi láta kærustuna fá fjarstýringuna þegar uppáhalds liðið er að spila fótbolta??? reyndar myndi ég ekki vera á staðnum því ég þoli ekki fótbolta… þyrfti því ekkert að hafa fjarstýringuna. Og varðandi síðasta atriðið um að hann/hún myndi hætta að reykja/drekka/neyta eiturlyfja bara því hann/hún elskaði mann svo mikið… þetta er bara rugl, maður hættir aldrei fyrir einhvern annan maður verður að gera það fyrir sjálfan sig því annars endist það ekki og maður endar t.d. reykjandi í laumi og þorir ekki að segja makanum frá því, því maður hætti jú fyrir hann.

1. Know how to make you smile when you are down.
2. Try to secretly smell your hair BUT you always notice.
3. Stick up for you but still be respectful of your independence.
4. Give you the remote control during the game.
5. Come up behind you, put his arms around you, squeeze you tightly against his chest, and whisper softly into your ear
6. Play with your hair.
7. His hands will always find yours.
8. Be cute when he really wants something.
9. Offer you plenty of massages.
10. Dance with you even if he feels like a dork.
11. Never run out of love.
12. Be funny, but knows when to be serious.
13. Realize he's being funny when he needs to be serious.
14. Be patient when you take forever to get ready.
15. React so cutely when you hit him and it actually hurts.
16. Smile a lot.
17. Plan a romantic date full of cheesy things he wouldn't normally do just b/c he knows it means a lot to you.
18. Appreciate you.
19. Help others out.
20. Drive 5 hours just to see you for 1.
21. Always give you a peck on the cheek when you depart from each other's company- even when friends are watching.
22. Sing even if he can't
23. Have a creative sense of humor.
24. Stare at you.
25. Call for no reason
26. Quit smoking, chewing, drinking, or drugs just b/c he loves you enough to quit!!

kveðja batteri :)
kveðja batteri ;)