Ég er í smá vandræðum, þannig er mál með vexti að ég er ekki rómantískasti strákur sem til er (en ég reyni)og kærastan mín er erlendis og kemur heim eftir viku.
Mig langar að vera svolítið góður við hana og vera svolítð rómó, en eins og ég sagði þá er ég ekki sem bestur í þessum málum og mig vantar ráð.
Mig langar að gera eitthvað sem maður getur gert heima, og eitthvað sem kostar ekki mjög mikinn pening (erum að fara í skóla).
Er ekki einhver sem getur gefið mér einhver góð “rómantísk” ráð, því að ég er búin að pæla mikið í þessu og mér dettur mjög fátt í hug.
Endilega sendið mer eitthvað skemmtilegt (bæði strákar og stelpur)
því ég held að ég sé að falla á tíma ef ég á að geta komið henni á óvart þegar að hún kemur heim.