það er verið að tala um það að þið skiljið ekki afhverju fallegt
kvenfólk sé með einhverjum lúserum eða eikkað álíka ok?
Ég skil ekki hvað það er með fallegt kvenfólk að þær séu einhverjar gyðjur ég meina ég þekki eina mjög fallega stelpu sem mér finnst ekki skemmtileg því hún veit svo ógeðslega vel af sér, sem fer í taugarnar á mér!! en svo er önnur sem ég þekki en hún er algjör perla svo mér finnst ljótt að vera að alhæfa um það að allar fallegar stelpur eigi hitt og þetta skilið!!
ég meina td sumir hérna vita um fallegar stelpur sem þeim finnst eiga betra skilið en mig langar að segja að kvenfólk er ekki einhvers konar fórnalömb sem þarf að bjarga!!
það er í þeirra eigin höndum!! og hvað með stelpur sem líta verr út en hafa betra hjartalag. ég meina af hverju skilja strákar þær svona útundan ok!! mín saga ég var litli ljóti andarunginn það fékk ég að heyra, strákar völdu aðrar stelpur fram yfir mig í hinu og þessu en svo stækkuðum við og ég blómstraði svona hryllilega mikið að strákarnir (þeir sömu), fóru að segja mér hversu mikið!! ég hefði breyst og ég væri orðin svo falleg og allt breyttist.
en það var ekki það sem ég vildi, að vera vinsælli vegna þess hvernig ég leit út. og núna þegar ég skoða myndir af mér þegar ég var yngri þá sé ég ekkert ófríða stelpu.
mér finnst þetta svo mikil synd fyrir stelpurnar sem hafa kannski átt erfitt í lífinu og fá svo kannski mótlæti vegna útlitisins í þokkabót?
eða aðrar sem hafa allt til alls og fá miklu meira vegna útlitisins!! og þær vilja ekki heldur láta flokka sig, þær eru ekki einhverjir sauðskrokkar!!
mér finnst bara ljótt að alhæfa svona um útlitð og mér þætti vænt um að þið mynduð ekki verað alhæfa svona um fallegar stelpur og hvað þá um hinar? eru þær þá ekki fallegar?
ég viðurkenni það að þetta sé mér hitamál en það sem ég upplifði
sem krakki/að verða unglingur það situr mjög fast í mér og mér líður ekki vel að heyra svona alhæfingar á kostnað þeirra sem geta ekki talist sem !!fallegar stelpur!!
ykkar einlæg honey