Enn og aftur er ég puzzled…! Sko, ég á eina vinkonu, sem er ótrúlega falleg… já, alveg gullfalleg… hún á við það vandamál að stríða, eins og margar fallegar stelpur sem ég þekki, að hún finnur sér alltaf einhverja algjöra asna! Ég skil ekki svona. Að manneskja sem getur valið úr karlmönnum skuli alltaf enda með einhverjum sem fer illa með hana. Frekar skýr í kollinum, vinamörg og myndarleg, og hún finnur sér alltaf einhverja sem eru henni ekki samboðnir… Þetta er ein af þessum gátum sem ég virðist aldrei ætla að geta skilið… Ég rakst á hana um seinustu helgi… og auðvitað kom riddarinn upp í mér… ég bauðst til þess að hýsa hana (ekki það að hana vantaði samastað… :) en hún sagði að hún vissi alveg hvað myndi gerast… ég var nú ekkert á því. En allavegana þá sagði hún ennfremur að ég ætti eftir að vera góður við hana, og hún gæti bara ekki farið að standa í því núna…! Hún er semsagt að meina að ég ætti eftir að vera það góður við hana að henni ætti eftir að líka það og við lifa hamingjusöm til æviloka, en hún bara væri ekki til í það núna, því hún mætti ekki vera að því…! Ég hringdi svo í hana daginn eftir bara til þess að undirstrika það að ég hefði ekki verið að falast eftir skyndik… og hún var svolítið undrandi að ég skyldi hafa hringt… En svona my guess var það að hún væri að einbeita sér að því að finna sér einhvern sem gæti farið illa með hana… Hvað er að??? Ég skil ekki afhverju fólk vill láta fara illa með sig, og sérstaklega kvennmenn, fallegir eða ekki, þær eiga það bara ekki skilið!!!
Undrandi
Gromit