ég var með stelpu sem ég kynntist á irc…hún kom vælandi til mín með vandamál sem hljómaði þannig að hún var að pæla í 2 gaurum á sama tíma……það endaði með því að hún féll svo fyrir mér, við byrjuðum saman og eftir 1 og hálfan mánuð vorum við farin að elska hvort annað…..svo byrjaði vesenið og reyndar getur vel verið að það hafi verið allt mér að kenna en ég semsagt sýndi henni ekki nógu mikinn áhuga (hékk of mikið í tölvunni hehe) og hún sagði mér upp…..eftir að þetta gerist þá segi ég við hana \“ég skal ekki koma nálægt tölvu eða neinu sem tengist því ef þú vilt koma aftur því ég elska þig svo mikið\”……en nei, það var bara ekki nógu gott fyrir hana, hún vildi bara halda áfram með sitt líf og láta þetta gott heita……hún hafði aldrei áður elskað neinn, aldrei upplifað svona mikla ást og hún hendir því í burtu útaf smá misstökum hjá mér sem ég var reiðunúinn að laga einsog skot…..ekki nóg með það heldur komst ég að því að hún var daðrandi (sem reyndar er bara eðlilegt) hösslandi og leitandi á meðan við vorum saman……eina nóttina þá gisti ég hjá henni og spyr hana hvort ég megi skoða hjá henni pósthólfið hennar og athuga hvort þar væru myndir af strákum og þess háttar og hún leyfir mér að skoða það en neitaði því að þar væru myndir eða neitt annað…..svo um morguninn þá skutlar hún mér heim og um leið og ég er stiginn útúr bílnum þá hringir hún í vinnuna sína og biður einhverja stelpu sem vinnur með henni að fara inná póstinn sinn og deleta út öllu því sem heitir hössl/myndir…..en það sem hún vissi ekki að ég sá þegar allt þetta hössl dót var að færast úr inbox og í trash…….svo þegar þetta er búið þá kemur hún á msn og byrjar að spjalla við mig og ég spyr hana aftur hvort það hafi alveg örugglega ekki verið neitt þarna og hún neitar aftur…..þegar ég svo segi henni að ég hafi fylgst með þegar var verið að henda öllu í ruslið þá flippar hún út og byrjar að ljúga öllum fjandanum að mér og uppúr því byrjuðu rifrildin sem endaði með því að við töluðumst sama og ekkert við……ég bara spyr, hvað í fjandanum er að fólki að gefast svona fljótt upp (sérstaklega þegar ástin er svona mikil einsog hún var) þegar manneskja klikkar á einu atriði og er reiðubúinn að lagfæra það….núna í dag þá er hún með strák en ég er á lausu, ég elska hana ennþá en það sama virðist ekki gilda um hana hvað varðar ást í minn garð……kv. weedman :/