jæja það er þetta týpíska hér … vil gaur get ekki fengið hann :\ Ég kynntist þessum gaur fyrir þó nokkrum tíma… en þegar við vorum að kynnast þá átti ég kærasta. Þegar ég kynntist gaurnum þá fékk ég strax áhuga á honum og greynilega hann líka þar sem við fórum að tala mjög mikið saman og svo fórum við í bíó saman og hann kom mjög oft í heimsókn til mín, einn daginn þá sagði hann mér að hann væri hrifinn af mér og ég fékk mjög mikið sjokk þar sem ég vissi að ég væri hrifin af honum líka en ég vildi ekki viðurkenna það út af ég átti kærasta og ég og kærastinn minn vorum búin að vera bestu vinir í 2 ár og vorum búin að vera saman í 6 mánuði… ég vildi bara alls ekki særa kærastann minn en ég vissi samt að ef ég yrði lengur með honum þá myndi ég bara særa hann enn meira en ég þorði samt ekki að segja honum upp ( ég er ekki gáfaðasta manneskjan) en ég hélt áfram að hitta gaurinn og var enn með kærastanum. Eftir einhvern tíma þá ákvað gaurinn að hætta bara að tala við mig … hætti að hringja í mig og valla talaði við mig ef ég hringdi í hann … svaraði bara spurningum sem ég spurði, ég varð bara meira og meira hrifin af honum og svo loks sagði ég kærastanum upp. Ég reyndi og reyni að fá upp úr gaurnum afhverju hann vildi ekki tala við mig og eitthvað en hann bara neitaði að svara mér því en svo stundum þá ákveður hann að tala bara við mig og koma í heimsókn… sem ég fatta ekki !! og það pirrar mig verulega … gaurinn neitar líka að trúa því að ég sé hrifin af honum, vinir gaursins segja mér að hann sé enn hrifinn af mér og vinir mínir segja að gaurinn sé fífl og að ég eigi að gleyma honum, ég hef oft reynt að gleyma honum bara en þá kemur hann í heimsókn eða talar við mig sem eyðileggur allt fyrir mér.
Einn daginn þegar ég var ekki búin að heyra í honum í nokkrar vikur þá fer ég á samkomu með mínum fyrrverandi þar sem við erum enn góðir vinir og það var búið að segja mér að gaurinn myndi kanski koma þangað en ekki hanga þar … þannig að ég hélt að það væri allt í lagi að fara þangað. Um leið og gaurinn kemur inn um dyrnar á salnum þá sé ég hann og þetta var það fallegasta sem ég hef á ævi minni séð… hann talaði við mig á samkomunni og var voða nice en svo þegar ég ætlaði að tala við hann næst þá virtist hann bara hata mig. Núna í hvert skipti sem ég hugsa um hann, sé hann eða tala um hann þá fer ég bara að gráta. Ég veit ekkert hvað ég á að gera … ég spái ekkert í öðrum strákum lengur … ég bara vil ekkert nema hann. Ég hata þetta … mér líður svo illa
ef þið hafið einhver svör þá væri ég til í að lesa þau