ég vil þakka öllum fyrir
að gefa mér góð ráð og hjálpa mér:)
mar skiptir greinilega máli hérna!!
ég roðna bara:)
allavega þá langaði mig að segja takk fyrir stuðninginn!!
og fallegu orðin ykkar þar á meðal þín tippzorah
mér þótti mjög vænt um það sem þú sagðir:)
og auðvitað líka þið sem sögðuð eitthvað svona fallegt:)
mér þótti vænt um það!!
en hann kallinn minn er ekkert skrímsli, ég veit samt hvað þið voruð að segja með því!!
hann er voða góður strákur og ég hef ekkert verið
of auðveld að búa með en það er kannski vegna þess
að hlutirnir eru ekki afgreiddir þegar þeir koma upp
(eins og Tippzorah segir í grein sinni dont let the sun
go down on me (vonandi rétt borið fram))!!
sko svo er ég hjá manni sem ég er að tala við.
svona meðferð ég hef sagt það áður, en ég er
að gera tiltekt í sjálfri mér, og er að takast
á við hlutina,
þar á meðal öll mín sambönd og og auðvitað samband
mitt við hann og þannig að ég mun ekki festast í neinni
óhamingju eða neitt, það er allt að gerast hjá mér
núna og ég hef mikið að velta fyrir mér núna
svo ég var kannski bara mjög pirruð þegar ég skrifaði
greinina, en auðvitað er eitthvað til í henni
og margt sem ég þarf að hugsa um
en ég þakka ykkur stuðninginn og mér bara finnst þið öll
með tölu alveg frábær og ég er fegin að hafa rambað inn á huga
og kynnst ykkur!! ég væri mikið meira ein ef
ég gæti ekki "spjallað!! við ykkur öll:)

TAKK!! HONEY