Stundum getur maður ekki hugsað sér neitt betra en að vera hrifinn af einhverjum en svo koma líka tímar þar sem maður myndi drepa fyrir það að vera ekki hrifinn af þessum ákveðna einstaklingi. Stundum getur maður ekki hægt að hugsa um þessa ákveðnu persónu og það getur stundum ekkert verið betra en það og stundum ekkert verra en það eins og t.d gat ég ekki sofnað í gærkvöldi út af þessu öllu saman og ég var orðinn frekar pirraður.
Þessi stelpa sem að ég er hrifinn af hefur aldrei verið með strák og það hafa mjög fáir reynt við hana og flestir líta á hana sem litlu sætu stelpuna en ekkert meira. Fyrst leit ég á hana þannig og ég gerði það í raun í 3 ár. Síðan fyrir 1. ári fannst mér hún bara orðin mjög sæt og fyrir um 2 vikum féll ég gjörsamlega fyrir henni og hef aldrei verið svona hrifinn af neinni stelpu! Alltf þegar að ég hringi í hana þá er eins og hún sé eitthvað heit en sumir segja áð það sé ekki sjéns af því að þetta sé HÚN!!

Þess vegna langar mig að vita hvernig á ég að hegða mér í smskiptum við hana og hvað ég eigi að gera og hvernig túlkið þið ástina??? Er hún kvöl
og pína, mikil ánægja og hamingja eða bara bæði?