Hann og hún. Ég leyfi mér að setja þetta hérna inn þó þessu hafi verið heiðarlega stolið af www.menn.is, þetta er ágætt dæmi um samskipti kynjana og hvað einfaldir hlutir geta flækst mikið ef þeir eru ekki ræddir og hvernig konur geta gert úlfalda úr mýflugu ;)

Hennar hlið á gærkvöldinu :

Hann var í furðulegu skapi í gærkvöldi. Við höfðum ákveðið að hittast á kaffihúsi yfir einum drykk eða svo. Ég hélt að það væri mér að kenna, þar sem ég var heldur sein vegna þess að ég var að versla með stelpunum og gleymdi mér aðeins. Hann minntist samt ekkert á það. Okkur gekk ekkert að ná saman, svo ég hélt að það yrði kannski þægilegra að vera einhverstaðar þar sem við gætum verið ein, svo við fórum á mjög rómantískt veitingahús. En hann var ennþá í ferlega furðulegu skapi. Ég reyndi að hressa mig og var farin að spá í hvort að þetta væri bara ég eða hvort eitthvað alvarlegt væri í gangi. Ég spurði hann, en hann svaraði því neitandi. En ég var ekki viss. Allavega, á leiðinni heim, þá sagði ég honum hvað ég elskaði hann heitt. Hann setti hendina utan um mig, en svaraði mér ekki.

Ég veit ekki hvað í fjandanum það á að þýða, því ég var nú kannski að vonast til að hann myndi segja að hann elskaði mig líka eða eitthvað. Við komum loksins heim og ég var farin að spá í hvort hann ætlaði að dömpa mér. Ég reyndi að fá hann til að tala, en hann kveikti bara á sjónvarpin. Þá gafst ég upp og fór í rúmið. Mér til mikillar undrunar þá kom hann upp til mín um það bil 20 mínútum seinna. Við gerðum það, en hann virtist ennþá vera utan við sig. Eftir sexið dauðlangaði mig að hundskamma hann, en ég grét mig bara í svefn. Ég veit ekki hvað ég á að gera lengur. Ég meina, í alvöru. Ég held að hann sé farinn að halda framhjá mér.


Hans hlið á gærkvöldinu:

Manchester tapaði. Ég fékk þó að ríða.


Kv. EstHe
Kv. EstHer