Sæl öllsömur…..ég held bara að textinn segi flest um mig, en ég var að hætta með stelpu sem að ég hafði bara verið með í mánuð (en fyrsta stelpa sem ég byrja með) og við hættum saman fyrir u.þ.b viku. Við hættum saman á föstudag og svo hringdi hún í mig um kvöldið og spurði mig hvort ég vildi fara að djamma með henni og vinkonum hennar og ég áhvað að fara að gera það en ég átti að taka eitthverja vini mína með en þeir voru allir upptektnir þannig að mér var bannað að koma til hennar! En svo hringdi hún í mig á sunnudag og spurði mig hvort ég vildi fara í bíó með henni og vikonu (og ég nátturulega með vin) og ég áhvað að fara með þeim og svo vorum ég og vinur minn eitthvað 5 mín of seinir og ég hringdi í þær og þær voru komnar í salinn og söðu að við mættum bara fara á aðra mynd (því að við vorum búin að sjá myndina sem þau fóru á) en við áhváðum að fara á þessa mynd með þeim og ég sast við hliðiná “my X”og við sögðum ekki orð við hvort annað, svo fór ég að segja við vini mína (á mánudaginn) að við værum hætt saman og að mér finndist þetta allt bara vera fárálegt og svo seinna um kvöldið kom hún á ircið og sagði að hún væri geðveikt fúl út í mig, og við vorum bara að rífast en eitthvernveginn þá getur hún ekki talað við mig (í persónu eða yfir símann). Og svo á seinasta laugardag þá hringdi vinkona hennar í mig og bað mig og vini mína að koma til “mynnar fyrrverandi” og eitthvernveginn plötuðu vinir mínir mig í að koma og einu sinni enn þá gátum við ekki talað neitt saman, svo sagði vinkona hennar að ég þirfti að fara að skemmta mér meira með henni, en alltaf þegar vinir mínir hafa hætt með stelpum þá talast þau ekkert saman lengi (og ég held að það sé normal). Svo fyrir laugardaginn þá held ég að hún hafi verið að reyna að gera mig öfundsjúkann því að það var árshátíð hjá okkur og hún sagðist hafa verið með eitthverjum gaur þar…….En núna koma spurningarnar 1: Hún og vinkona hennar voru í sérskóla (tjarnarskóla) og þekkja engann í bænum þannig ég er að spá hvort þær séu að nota mig til að kynnast fólki. 2: Er hún ennþá eitthvað hrifin af mér og þorir ekki að seja neitt eða er hún bara…..skrýtin?

Ef þið náðuð að lesa allt þetta bréf þá vill ég bara þakka ykkur fyrir að taka tímann í að lesa og ef þið gætuð verið með eitthver svör eða ráð þá væri það fínnt :)