ÍTALÍA þetta nafn hljómar alveg yndislega í mínum eyrum.
Éf vil að þið gefið mér mat á þessa hugmynd mína.

Og hún hljómar svona.

Ég er búin að vera með yndislegri stelpu i 4 ár og mér langar að reyna að biðja hennar en það er að ganga voðalega hægt því draumastaðsetningin er nefnilega Italía nánar tiltekið Verona eða Feneyjar en það kemur alltaf eitthvað uppá.
Dæmi: Fyrra ætlaði ég að bjóða henni og þá vorum við nýbúin að kaupa okkur íbúð þannig að það voru ekki til peningar fyrir því þannig að við ákvöðum að fresta því til sumarsins sem er að koma en það lítur allt út fyrir það að það muni ekki heldur ganga upp því að maður er alveg skítblankur.
Eins og allir hafa orðið var við er rosaleg verðbólga að ganga og við finnum alveg rosalega fyrir henni og þetta peningaleysi er að skemma fyrir manni rómantíkina.
Ég get farið út en það yrði bara kannski nokkrir dagar og það er bara leiðinlegt,maður getur ekki slappað af í nokkra daga og gert eitthvað rómantískt fyrir konuna.
Ég sé þetta bara fyrir mér hvernig ég ætla að gera þetta.

Fyrst ætla ég að læðast til þess að kaupa hring einhverstaðar í Ítalíu og síðan seinna um kvöldið ætla ég að bjóða henni á fínann veitingastað og svo BINGO kemur stóra spurninginn.
Ég veit fyrir víst að hun muni segja já því hun er alltaf að vonast eftir hring en ég vill ekki gera þetta nema ég sé einhverstaðar nálægt Ítalíu því ég vill gera þetta mjög fullkomið og vill koma henni í opna skjöldu með þetta.

HVAÐ Á ÉG AÐ GERA?????????


Pirraður og ástfanginn maður.
KV