Ég bara spyr, hvernig á eiginlega að reyna við stráka? Þeir koma nefnilega oftast til mín og reyna við mig en ekki öfugt. Svo er ég svo hrikalega feimin hvað þetta snertir. Ég er ekki búin að vera í föstu sambandi í ár.Það er nefnilega þannig að ég er búin að vera rosalega hrifin af strák núna seinastliðið ár, en hann er með stelpu og dæmi. Ég held að mér sé loksins að takast að komast yfir hann.
Núna á föstudaginn fór ég á ball, sem er ekkert frásögu færandi, nema að þar sá ég þennan líka gæja. Ógeðslega fallegan og dæmi. Þetta er vinur vinar míns, en ég þekki hann samt ekki neitt. Ég þorði ekkert að tala við hann.Svo var okkur hrint saman og við dönsuðum tvo dansa, en svo þegar ég sá að hann ætlaði að gerast svolítið ágengari, varð ég hræd, sagðist þurfa að fara á klóstið, og stakk hann svo af! Ég sá ekkert smá eftir því, og ég skil ekki sjálf afhverju ég lét mig hverfa.
Mig langar alveg í hann, en ég þori bara ekki að reyna við hann. Og einsog þið sáuð hérna fyrir ofan, þori ég ekki heldur að taka á móti þegar það er verið að reyna við mig. Það má vera að sum ykkar segi að ég sé aumingi að þora því ekki..en..
Hvað í fjandanum á ég eiginlega að gera?
Ekki ætla ég að enda sem einhver pikarjúnka, bara afþví að ég þori ekki!