Ég var ekki alveg vissum hvert ég ætti að setja þetta,en ég býst við að þetta eigi heima hér á Rómantík………..


Við (hér á vinnustað mínum) fengum sent bréf að utan sem við snöruðum yfir á Íslensku,þetta vakti mikla eftirtekt og umræður hér og ég vona að þið hafið gagn og gaman af……….

Takið eftir hvað lítið hefur breyst (þetta bréf er síðan 1692) svo virðist sem gildin (values) séu nær óbreytt og að fólk noti sömu viðmið í daglegu lífi og í leit sinna að lífshamingju………

Svona er bréfið..

Temdu þér rósemi í dagsins önn og mundu friðinn,sem getur ríkt í þögninni. Reyndu að lynda við aðra,án þess að láta þinn hlut. Segðu sannleikann af hógværð en festu. Hlustaðu á aðra þótt þeir kunni að hafa lítið til brunns að bera,þeir hafa sína sögu að segja…

Forðastu háværa og freka,þeir eru æ til ama. Vertu ekki að bera þig saman við aðra,þú verður engu bættari,sumir eru ofjarlar þínir,aðrir mega sín minna. Gakktu ótrauður að hverju verki,láttu ekki sitja við orðin tóm…

Leggðu alúð við starf þitt,þótt þér finnist það léttvægt. Vinnan er kjölfestan í völtum heimi. Vertu varfærinn í viðskiptum, því margir eru víðsjálir. Lokaðu samt ekki augunum fyrir dyggðinni þar sem hana er að finna. Margir stefna að háleitu marki og allsstaðar er verið að drýgja dáð..

Vertu sannur. Reyndu ekki að sýnast. Ræktaðu ástina,því þrátt fyrir þyrrking og kulda er hún fjölær eins og grasið. Virtu ráð öldungsins, sem víkur fyrir æskunni. Stældu hugann svo hann verði þér vörn í hretviðrum lífsins…

Auktu þér ekki áhyggjur að ástæulausu. Margur óttinn stafar af þreytu og einmanakennd. Agaðu sjálfan þig,en ætlaðu þér af.
Þú ert þessa heims barn,rétt eins og trén og stjörnurnar, og þú átt þinn rétt. Þú færð þín tækifæri þótt þu gerir þér það ekki alltaf ljóst…

Haltu frið við Guð - Hvernig svo sem þú skynjar hann, hver sem iðja þín er og væntingar í erli lífsins, vertu sáttur við sjálfan þig..

Lífið er þess virði að lifa því þrátt fyrir erfiðleika,fals og vonbrigði. Vertu varkár..

Leitaðu hamingjunnar..

Fannst í gömlu St.Pálskirkjunni í Baltimore Í Bandaríkjunum

Ársett 1692

P.s ef einhver veit meira en ég um þetta bréf þá vinsamlegast látið mig vita…..

Kveðja
Will