Nú er ég búin að vera í sambandi í bráðum 2 ár og elska unnustann
minn útaf lífinu en hann hefur einn leiðilegan galla, hann er álíka rómantískur og hundamatur.Ég hef reynt að tala um þetta við hann og hann lofar bót og betrun og svo gerist ekki neitt.Þetta er alveg að gera mig brjálaða því að ég er alveg hrikalega rómantísk í mér og hef svo gaman af öllu sem viðkemur henni. Í guðanna bænum hjálpiði mér áður en ég fer á hæli fyrir rómantíkursvelt ungt fólk.