Úff… þetta er í fyrsta skipti sem ég læt eitthvað frá mér hérna á huga svo ég vona að ég lendi ekki í skítkasti og leiðindum eins og svo oft vill gerast.

En mig langar, eins og svo mörgum öðrum hér á rómantík, að losa aðeins frá mér og spyrja hvað ég á að gera með líf mitt…

…ég hef ekki verið í sambandi í meira en ár, allt gott og blessað með það en vandamál mitt er ekki sambandsleysi heldur eiginlega of margir karlmenn..!
Númer 1 er strákur sem ég er búin að þekkja í nokkur ár, frekar góður vinur minn (núna líklega besti vinur minn), en ég var búin að vera að reyna við hann með millibilum frá 2006 en hann hefur jújú, gefið mér áhuga og við fórum oft heim saman en aldrei gerðist neitt, snemma árs 2008 fórum við fyrst alla leið en í kjölfarið af því fylgdi fullt af dramaköstum frá mér þegar hann var með örðum stelpum því ég bar svo miklar tilfinningar til hans sem mér fannst hann vera að traðka á með því að vera að kyssa aðrar stelpur (tek það fram að hann fór samt aldrei lengra en það), hann var líka oft að tala um að hann gæti ekki gert neitt með mér þar sem við værum það góðir vinir og að hann væri ennþá að komast yfir sína fyrrverandi og hann vildi ekki gera neitt með mér ef hann meinti það ekki 100%. En á endanum þegar ég var alveg að gefast upp á honum hitti ég númer 2 fínn og hress strákur alltaf í góðu skapi en svoldið mikill grallari og svona já, tekur ekki lífinu allt of alvarlega. Við sem sagt byrjuðum að vera eitthvað saman í apríl eða svo og vorum meira og minna saman á hverjum einasta degi (eða ætti ég að segja hverju einasta kvöldi þar sem við hittumst eiginlega aldrei annað nema bara að gista saman) fram í júní þegar ég yfirgaf landshlutann til að vinna annarsstaðar… einu sinni þegar ég og númer 2 vorum að djamma saman hitti ég númer 1 á barnum og við vorum að spjalla og þá fór hann að tala um hvað honum þætti sárt að sjá mig með örðum þar sem hann væri búinn að átta sig á því að hann væri frekar mikið hrifinn af mér og væri alveg til í að vera í sporum hins gaursins.
En allt í lagi, ég sem sagt fór burt að vinna og eitt það fyrsta sem ég frétti er að númer 2 sé búinn að kyssa eina af bestu vinkonum mínum STRAX og ég er farin, hann reyndar segir mér það sjálfur, og ég kem þá með mín tilheyrandi dramaköst og drulla yfir hann, hringi í hana og lýsi yfir vanþóknun minni á henni og að hún sé mesta tussa sem ég veit um (henni tókst þar að auki að ræna númerinu hans frá örðum aðila og var að senda honum sms daginn eftir og var svo að reyna að halda því fram við mig að þetta hefðu verið fyllerísmistök, og mig langar líka að segja það að af því að númer 2 fór ekki með henni heim þá fór hún heim með EINUM AF MÍNUM FYRRVERANDI!! TU**A!!!!)
En allavega, síðan kom ég heim og við sættumst og svo fór ég aftur. Við töluðum meira og minna saman í allt sumar, frétti að hann hefði sofið hjá 2 stelpum í júlí (en ég var enginn engill sjálf, svaf m.a. hjá númer1) en síðan hefði hann allt í einu tekið sig á og farið að hafna kvennfólki hægri vinstri, að því að mér er sagt fyrir mig.
Núna erum við í sama landshlutanum, ég og númer 2, en hann lætur yfirleitt eins og hann sjái mig ekki, en er samt ekkert með örðum stelpum að ég heyri. Númer 1 er heima og bíður eftir að ég komi aftur heim þar sem hann er loksins orðinn hrifinn af mér og farinn að tala um að við gætum jafnvel prófað að fara í samband og svo í þokkabót er númer 3 búinn að bætast við, gullfallegur náungi sem er/var með módelsamning og hefur greinilega ekkert annað að gera heldur en að reyna að fá mig heim með sér og gera líf mitt ennþá flóknara en það er með þessa 2 gaura…


…. jæja, ég veit ekki alveg hvað svarið sem ég vil fá við þessu er, en ef einhver gæti sagt mér hvað ég ætti að gera þá væri það frábært því ég er óákveðnasta manneskja í heimi.
það þýðir ekkert að segja “gerðu það sem þú vilt” því ég veit ekki hvað ég vil