ég var á leiðinni í tíma í dag og ég mætti stúlkunni sem ég er búinn að vera hrifinn af í ár og ég get svarið það að ég hélt að það myndi líða yfir mig vegna þess að hún heilsaði mér…
mér sortnaði fyrir augum en gat þó hæjað til baka en ég þurfti að setjast niður..
Ég get lofað því að ég hef aldrei lent í öðru eins….

Hún var svo falleg að…. engin orð geta nefnt það

Hvernig ætti ég að fara að þessu…
Ætti ég að einfaldlega að labba upp að henni og segja henni að mér líði eins og fugl í búri…. Ég er bara svo hræddur um að tilfinningar mínar ryðjist út eins og snjóflóð.

Þetta er bara eins og ég sé að geggjast úr Ást!! ég vona að ég finni lausn á þessu. allar vinsamlegar ábendingar vel teknar!