Ég er þessi venjulegi strákur. Ég reyni við stelpur og dreymir um flotta bíla. Ég hef verið í sambandi og stóð það í fleiri ár en ég þori að telja. Þegar við komum að þessu sambandamáli þá þarf ég víst að taka fram að ég er alveg einstaklega snjall að klúðra hlutunum! Ég skil ekki hvernig það gerist stundum en oftast er það eins og að sprengja kínverja í lófanum á sér, það þarf aðeins að tendra og svo er “no turning back”!
Hugmynd mín að sambandi er að vera með stelpunni eða ekki! það er, að gera þetta almennilega eða bara ekki! Stelpur vilja líka láta stjana við sig og fá dýra hluti og gjafir en það er óttalega lýjandi að gefa af sér og fá ekkert tilbaka! Ég er óttalega fúllyndur þegar mér leiðist og þá er ég ekki til í að stjana við einn eða neinn, þá vill ég láta stjana við mig! En það gerist ekki því Það er ekki í “reglunum” að stelpur eigi að gera eitthvað fyrir okkur strákana! Nú er ég í “sambandi” sem er óttalegt hell eitthvað! Ég fæ ekkert útúr stelpunni og þá meina ég andlega (ég elska þig, ég vill gera þetta osfrv) Hún þegir bara og ekkert gerist og maður getur ekki gert neitt ef að fólk lætur svona við mann! Er þetta normal hegðun hjá ófeiminni stelpu? á ég að ditcha hana og vera bara single ef ég get ekki höndlað þetta? HJÁLP!
Kvakkurinn
______________________________