Góðan daginn og gleðilegt nýtt ár!!!

Sko…. ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa grein er sú að ég er að reyna að komast að því af hverju stelpur nota orð eins og dúlla eða krútt eða svo framvegis… Hvað þarf maður að hafa til brunns að bera til þess að vera dúlla eða krútt. Er einhver munur á þessum orðum? Nú virðist vera að ég fái þetta viðurnefni nokkuð oft, annaðhvort er ég dúlla eða ég er krútt…. Hvað þýðir þetta, er ég sætur en ekki nógu sætur til þess að vera sexý? Strákar, hvernig finnst ykkur að vera kallaðir dúllur eða krútt af hinu kyninu. Ég meina….. stelpur tala meirisegja um að bílar séu krúttlegir, sósuumbúðir eru dúllulegar o.sv.frv. Hver er skilgreiningin á þessu?? Ég bara spyr!

Kveðja,
Gucci (dúlla) :)