Okay, málin standa þannig að ég á að vera með gæsapartý fyrir vinkonu mína. Ég er búin að fá strippara, en veit ekki alveg hvað ég á að láta hana gera af sér. Hún er ófrísk svo hún drekkur ekki. Núna vil ég byðja um ykkar hjálp við að finna eitthvað sniðugt til að láta hana gera t.d. um daginn og svoleiðis, vitið þið kannski um einhverja skemmtilega leiki sem við getum verið með. Þar sem þetta er hennar partý þá ætlaði ég bara að vera með smá kampavín til að skála en ekkert meira en það þar sem hún er ófrísk, kannski svoldið leiðinlegt fyrir hana ef allir eru að drekka nema hún, svo mér finnst að allir ættu að vera edrú, við getum allavegana skálað.

Með fyrirfram þökk.
rumpe