Ég verð bara að koma þessu frá mér þó þetta tengist mér ekki neitt og langt frá því að það tengist rómantík. Ég bara vissi ekkert hvar annars staðar ég átti að setja þetta..

Þannig er mál með vexti að það eru hjón með 3 börn tiltörulega nýflutt í húsið á endanum hjá mér.
Maðurinn er að koma úr húsinu sínu einn daginn og fer til nágrannakonu okkar þar sem hún er eitthvað að gera fyrir utan hjá sér.. Konu sem þekkir hann ekki sem neitt annað en nýja nágrannan. Hann fer að segja henni að hann sé að fara að ná í viðhaldið sitt sem búi úti á landi.. Þau séu alltaf bara niðrí í kjallaranum að “dingla sér” á meðan konan er bara uppi með börnin þeirra. Fer svo að segja að fólk sem hann segi þetta hneikslist bara á honum, meina auðvitað þarf hann að gera eitthvað ef konan hans fullnægir honum ekki nógu mikið!

Svo var lögreglan kölluð heim til þeirra núna í morgun þar sem hann var að berja konuna sína.

Hvað er málið?
Hvernig getur þessi vesalings kona látið sig hafa þetta. Hún á með honum þessi 3 börn. Getur sennilegast ekki hugsað sér að vera einstæð 3 barna móðir, Þurfa að sjá alein fyrir stóru heimili..
Kanski elskar hún hann af öllu hjarta.. En að láta koma svona framvið sig.. ég gæti það ekki.. Auðvitað segi ég það núna.. Þar sem ég er ekki í hennar sporum og verð það vonandi aldrei.
Hann getur ómögulega elskað hana heitt finnst hann lætur svona..

Við fyrstu sýn lítur þetta fólk út fyrir að vera bara mjög hamingjusöm og venjuleg fjölskylda. En svo er raunin ekki.
Hver veit nema ykkar nágrannar séu svipaðir, nema séu bara ekki að gaspra þessu í nágranna sína.. Ég veit ekki..

Æ ég varð bara hneiksluð..