Já mig langaði að skrifa um núverandi samband mitt..veit ekki afhverju en bara er svo hamingjusöm.

Allavega sumarið 2006 hætti ég með mínum X og var frekar lengi að komast yfir hann. Seinna um sumarið bauð besta vinkona mín með sér og fjölskyldu sinni á menningarnótt í bænum. Og ég auðvitað sagði já..(ekki mikil tækifæri að komast i bæinn fyrir sveitamær)
við gistum hjá frænku hennar.
Við skemmtum okkur mjög vel þarna og svo á sunnudagskvöldinu var matarboð hjá ætt vinkonu minnar. Og mér leið hálf vandræðalega að vera þarna innan um allt skyld fólk hennar.
Allavega þá átti hún einn frænda sem að fangaði athygli mína strax. Hann var 3 árum eldi en ég og mjög myndarlegur. Allt kvöldið starði ég á hann..en passaði mig að vera nóg og lúmk svo að hann tæki ekki eftir þvi. Svo fórum við bara heim í sveitina á mánudeginum. Og alveg 2 vikur eftir á þá var þessi strákur fastur í haustum á mér..ég bara hugsaði ekki um annað og mig dreymdi hann á nóttunni. Þannig að ég spurði vinkonu mína um msn.
Svo loksins kom hann inná og ég fékk í magann..vissi ekkert hvað ég átti að segja né neitt. En sagði samt hæ..og það gekk alveg prýðis vel. Svo útfrá því töluðum við nánast daglega saman..og þetta gerist í sept 2006. svo vorum við eitthvað byrjuð að tengjast þarna í gegnum tölvuna . en svo kom að því að hann bauð mér með sér og vinum sínum í sumarbústað. Og það kom svo skemmtilega fyrir að það var sömu helgina og vetrar fríið í skólanum hjá mér. En já ég fór semsagt í sumarbústað þvert yfir landið..og eftir það höfum við verið órjúfanleg..kannski dálitið sterkt til orða tekið en allavega nánast.. næsti hittingur hjá okkur var svo ekki fyr en í lok nóvermber þegar að við fórum saman á rockstar tónleikana og eftir það byrjuðum við saman eða 5 des og erum ennþá saman.

En ég vildi bara segja frá þessu..og líka Þar sem að við erum búin að vera í fjarsambandi núna í næstum 9 mánuði..þannig að það teks alveg til að byrja með…
öll brjóst lafa að lokum..!