Hmmm ást, ástin getur verið það besta í heimi, því er ekki hægt að neita, en hún getur líka verið akkurat andstæðan!

Sjálfur er ég núna búin að missa trúna á ástinni, enda búinn að lenda illa í því, byrjaði með því að stelpan sem ég var búinn að vera með í 8 mánuði, stelpan sem ég hélt að væri ‘The one’, hún sagðist ekki elska mig lengur. Ég er búinn að leggja allt sem ég get í sambandið, og svona endar þetta? Þetta segir mér ekkert annað en að ég sé misheppnaður.
Slæmt er þetta já, en ekki endirinn, minna en mánuði eftir þá byrjar hún að dúlla sér með mjög góðum vini mínum, og endar þannig að þau byrja saman… ég lít ekki á hann sem vin lengur.
Já svona er lífið, á sama tíma og þetta er að gerast, þá er 1 vinur minn að halda framhjá með kærustu annars vinar míns, og ég lendi á milli, hvað geri ég? Get ekkert gert nema haldið mér saman.
Jább, og til að toppa þetta allt þá byrja ég að falla fyrir annarri stelpu, en kemst síðan að því að hún hefur ekki áhuga á mér… gaman það… Mynduð þið kenna mér um þó ég myndi missa vitið og verða bara geðveikur eða eitthvað?

-Toxiclove