Okey, þeir sem þekkja mig þá hef ég verið að tala um manneskjuna sem mig langar til þess að verða betri maður fyrir. Hún er svo frábær að ég á bara bágt með sjálfann mig. En allavegana, þá er ég búinn að vera á leiðinni að tala við hana núna í næstum því mánuð. Ég frétti í gær hvað hún heitir og að hún er ekki með strák! Það getur bara ekki gengið betur í lífi mínu en ákkúrat núna. Allavegana þá er ég að fara að hitta hana í kvöld!!! Ég talaði við vinkonu hennar og hún ætlar að hjálpa mér. Ég nefninlega verð bara eins og ég veit ekki hvað þegar ég hugsa um hana, eða sé hana og ég get bara ekki hugsað skýrt. Þetta er svo frábær tilfinning að mér finnst ég bara vera lánsamasti maður í heiminum ákkúrat núna. Og fyrir ykkur öll sem eru í leit að hamingjunni þá hef ég komist að svona smá “innside info”, frá hamingjunni, og ég kem ekki við jörðina núna vegna hamingjunnar. En þessi “innside info” er ekki til þess að deila, nema hvað að ég vona að þið finnið biðskýlið, þar sem strætóinn til hamingjunnar stoppar. Núna er bara allt frábært og mig langaði til þess að deila þessu með ykkur, sem ég er farinn að líta á sem hluti af fjölskyldu minni. Ég ætla bara að óska mér góðs gengis í kvöld og láta ykkur vita að núna ætla ég að láta mér fara líða vel og láta allt vera gott. Þetta er bara eitt af rómantískustu kvöldum sem ég hef upplifað og ég vona að þið fáið einhverja innsýn í virkilega hamingju. Ég elska allt, og ég elska ykkur og það sem meira er að mér þykir vænt um ykkur.
Ykkar að eilífu . . .
Gromit