Vinkona mín er líka með smá vandarmál.

Ok, mér vantar smá hjálp, verð bara að tjá mig aðeins um þetta líka

Fyrir u.þ.b 2 árum þá var systir mín að vinna í búð, með strák sem er 1 ári eldri en ég, fyrst þegar ég sá hann horfði hann á mig eins og hann væri hissa eða eitthvað, sá hann nokkrum sinnum þarna aftur og þá var hann alltaf að segja við systir mína að ég væri ógeðslega falleg, með einhverjar sögur í kringum það og svo bauðst hún að gefa honum nr. mitt og hann vildi það, en hún gleymdi því svo, en svona 3 mánuðum eftir þetta, þá var ég hjá vinkonu minni, og við vorum að leita að msni hjá strák sem við þekkjum, og ein stelpa gaf okkur msn, og hann sendi mynd af sér og þá var þetta strákurinn sem var að vinna með systir minni, svo ég sagði vinkonu minni að ég vissi hver þetta væri og sagði henni þetta allt saman,, svo þegar ég var komin heim fór ég á msn, var ekkert að skoða hverjir voru inná var að gera eitthvað annað þá kom allt í einu hann “hver er þetta?” og þá fattaði ég það strax að vinkona mín addaði honum inná hjá mér, svo ég sagði það bara við hann, að hún addaði honum, og hann bara okei. Svo spurði ég hann hvort að hann væri að vinna með systir minni(sagði nafnið á henni samt) og þá sagði hann, jú, er þetta kanski systir hennar ? og sagði já, eftir það þá hætti hann ekki að tala við mig, var bara sífellt að segja eitthvað fallegt við mig, og að tala um það hvað ég væri falleg og eitthvað, svo hittumst við, og í seinna skiftið sem við hittumst þá sá ég stráka sem voru með mér í skóla og ég vissi að þeir myndu vera ógeðslega böggandi að sjá mig með honum og vin hans(voru það líka í ár), svo ég var bara ýkt pirruð restina af kvöldinu ;/, og ég hætti bara alveg að sýna honum áhuga, var eins og ég nennti bara ekkert að hafa hann, svo daginn eftir prufaði hann bara að sleppa því að tala við mig á msn, til að gá hvort að ég myndi tala eitthvað við hann því hann hélt að ég hafði engann áhuga á honum, og ég sagði þá bara ekkert við hann því að ég þorði því ekki, ég var svo feimin við hann þá, og hélt líka að hann væri búinn að missa áhugann á mér því að hann talaði ekkert við mig, og svoleiðis hættum við bara að tala saman, og mér leið hræðilega, svo eftir svona 2 mánuði byrjaði hann með aðrari stelpu, og þá leið mér eins og heimurinn væri að enda eða eitthvað, mér leið svo illa, og hann er ennþá með þessari stelpu núna, þau eru búin að vera saman í 1 og hálft ár, ég get ekki komist yfir hann, ég er búin að særa nokkra stráka sem hafa orðir hrifnir af mér en ég vill þá ekki,, það er mjög leiðinlegt, en ég get ekkert í þessu gert afþví að ég vil engann annann en hann. Ég þori ekki að segja honum frá þessu afþví að ég vill ekki lenda í neinu veseni,, með kærustuna hans, En mér finnst eins og ég þurfi að segja honum frá þessu, ég veit að ég á aldrei eftir að fá hann ef ég geri það ekki, ef ég fæ séns núna þá er þetta seinasti sénsinn, annars gæti verið að ég fái ekki séns því að þau eru búin að vera svo lengi saman og kanski vill hann ekkert slíta þessu núna, samt veit ég margt um hana, sumt sem hún hefur sagt við mig sannar það að hún er ekki jafnt hrifin af honum og ég og líka sögur sem ég hef heyrt um hana og eitthvað sem ég veit um hana þá er hún ekki beint stelpa sem á hann skilið. En hvernig á ég að fara að því? Ég get ekki hringt bara allt í einu í hann, þarf að fara einhvernvegin auðruvísi að því.

Einhver með einhver ráð hvað ég get gert ?