Þannig er málið að ég kynntist stráki núna fyrir jól og við vorum að hittast alveg fram í miðjan janúar! Þetta voru kannksi svona c.a 3 vikur sem við vorum að hittast og ég hélt alltaf að allt væri bara að ganga vel! Við töluðum alveg saman og svona..en hann var náttúrulega ekki kærastinn minn ennþá þar sem tíminn var svo stuttur!

En svo gerðist eitthvað! Vinur hans og vinkona mín sem voru að ,,deita" á svipuðum tíma hættu að hittast og eftir það að þá ósjálfrátt hætti hann smá saman að tala við mig. Ég var alltaf að verja hann fyrir vinkonum mínum. Þær voru endalaust að segja mér að hann væri ekki þess virði að reyna að eltast við meira!En ég auðvitað hlustaði ekkert á þær því auðvitað vill maður ekki heyra frá öðrum að strákur sem maður er yfir sig ástfangin af sé bara hálfviti og ekki þess virði.
Ég reyndi all til þess að fá útskýringar.. var að senda honum sms og hringja en engin svör! Svo ég ákvað að hætta því bara alveg. Hafði nenfilega talað við besta vin minn og hann hafði sagt mér að ef strákar eru ekki að sýna áhuga á móti að þá náttúrulega augljóslega hafa þeir engan áhuga!
En þá fór ég aftur að hugsa. Hvað var hann þá að gera með mér allan tímann? Það var enginn að neyða hann! Og hvað um allt sem við gerðum saman..allt virtist vera að ganga svo vel! Tala nú ekki um síðasta kvöldið sem ég hitti hann! Höfðum farið í bíó og haft það voða kósý og svo skutlaði hann mér heim..allt var bara eins og venjulega og svo bara heyri ég ekki í honum í 1 og 1/2 mánuð eftir það! Semsagt eftir að vinur hans og vinkona mín hætta að hittast daginn eftir!

Ég sat heima næstu daga og bara í sannleika sagt í þunglyndi! Samt mátti engin segja mér að hann væri hálfviti. Ég varð bara reið og pirruð því alltaf hélt ég því fram að það væri einhver ástæða fyrir þessu! Það væri kannski eitthvað að eða eitthvað…svona var ég bara á þessum tíma!

Ég heyrði semsagt ekkert í honum og fékk enga útskýringu og svona var þetta í næstum mánuð eftir á! Ég alveg eyðilöggð:S…síðan gerist það að ég hitti hann óvart á rúntinum með vini sínum einn daginn. Ég ákvað bara að prófa nýja aðferð og minnast ekkert á þetta við hann! Fara bara að spjalla frekar því ekki ætlaði ég eitthvað að fara skríðandi til gaursins og biðja um útskýringu þar sem hún var náttúrulega augljós! Hann hafði engan áhuga!
Við hittumst á planinu og með því að hundsa hann og tala bara við vin hans að þá náði ég að halda honum þarna í 4 klst. Hann talaði nú ekki mikið en hann keyrði ekkert í burtu…eða reyndi að forðast mig! Ég frekar bara sleppti því að tala við hann og lét vin hans bara um að tala!

Samt sá ég alveg á honum að honum langaði að segja eitthvað því ég trúi ekki upp á náunga að vera svona illskeyttur! Auðvitað hlýtur hann að vilja útskýra þetta fyrir mér! Eða hvað:S:S?

Eftir þetta kvöld fer síðan vinur hans að hringa í mig á fullu. Við vorum náttla búin að vera vinir alveg en hann fer að hringja óvenju mikið í mig. Við erum aðallega að spjalla um mig og hinn gaurinn og ég að spyrja hann hvað hafi verið málið og sonna. Hann náttla skilur ekki neitt í neinu og bara á ekki til orð yfir aðferðinni hjá vini sínum! Þessi vinur minn…sem ég ætla að kalla bara Jón..hringir síðan í mig eitt kvöldið á rúntinum og er bara að tjékka á mér. Við förum bara eitthvað að spjalla og ég spyr hver sé með honum! Hann segir að vinur sinn sé þar og ég segi honum að rétta honum símann…var bara komin með upp í kok af því að hann væri að forðast mig! En í staðin fyrir að æsa mig talaði ég bara við hann og spurði bara hvað væri að frétta og sonna…en innst inni langaði mig að öskra!!!

En ég er að segja það að þessi aðferð virkaði. Með því að æsa mig ekki þá hef ég fengið hann til þess að loksins tala við mig á msn..þó það sé mjög erfitt og yfirleitt er það aðallega bara ég ´sem ´sé um að finna upp á umræðuefni!

En ég er bara búin ap komast að því að svona stráka á maður ekki að vera að eltast við..ef þeir eru ekki að senda manni sms eða hringja að þá hafa þeir ekki áhuga!

En í dag erum við ágætis vinir..enda er voða þægilegt að besti vinur hans, Jón, er góður vinur minn og þess vegna finn ég að hann er ekkert á leiðinni neitt í burtu frá mér! En ég vona svo innilega að engin eigi eftir að lenda í svona manneskju…óákveðin hvað varðar sambönd og hrædd/ur við að segja frá tilfinningunum sínum og afgreiðir málið með því að loka alveg á manneskjuna og skilja hana eftir sem eitt stórt spurningamerki…í sannleika sagt gerði hann mér náttúrulega engan greiða með þessu!